Frank Rikjaard þjálfari Barcelona gerði fjórar breytingar á leikmannahópi sínu fyrir borgarslaginn gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld en hann hefst á Camp Nou klukkan 18.
Eiður Smári Guðjohnsen er á sínum stað í hópnum en þeir Deco, Thierry Henry, Andrés Iniesta og Bojan Krkic koma allir inn í hópinn. Þeir misstu af síðasta leik, gegn Recreativo Huelva.
Lilian Thuram, Santi Ezquerro og Edmílson voru ekki valdir í hópinn að þessu sinni og þeir Ronaldinho, Oleguer Presas og Albert Jorquera eru á meiðslalistanum.