Eiður lék fyrri hálfleikinn í jafnteflisleik Barcelona

Kameni markvörður Espanyol ver frá Eiði Smára sem komst í …
Kameni markvörður Espanyol ver frá Eiði Smára sem komst í gott færi. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrri hálfleikinn með Barcelona í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafnefli við granna sína í Espanyol í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Eiður átti fína spretti og fékk gott færi en Kameni markvörður Espanyol sá við honum og varði skot hans.

Barcelona er í öðru sæti deildarinnar, átta stigum á eftir meisturum Real Madrid sem eiga leik til góða gegn Santander á morgun.

Eiður og félagar hans taka á móti Englandsmeisturum Manchester United í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert