Theódór Elmar Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði mark og var síðan rekinn af velli í leik með Lyn gegn Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Elmar kom Lyn yfir á 20. mínútu, 1:0. Hann fékk síðan gula spjaldið í lok fyrri hálfleiks, og annað eftir 10 mínútna leik í þeim síðari og var þar með rekinn af velli. Strömsgodset skoraði sigurmark í blálokin, 2:1. Indriði Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Lyn.
Haraldur Freyr Guðmundsson spilaði síðustu 20 mínúturnar með Aalesund sem vann stórsigur á HamKam, 5:0.