Koeman sagt upp hjá Valencia

Ronald Koeman var sagt upp störfum hjá Valencia.
Ronald Koeman var sagt upp störfum hjá Valencia. Reuters

Spænskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Hollendingnum Ronald Koeman hafi verið sagt upp störfum sem þjálfari spænska 1. deildarliðsins Valencia.

Valencia steinlá fyrir Atletico Bilbao, 5:1, í gær og var það kornið sem fyllti mælinn hjá forráðamönnum félagsins en liðið er í 16. sæti deildarinnar með 39 stig og er aðeins tveimur stigum frá fallsæti.

Valencia varð í síðustu viku bikarmeistari undir stjórn Koemans þegar það hafði betur gegn Getefe, 3:1, í úrslitaleik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert