Það verða Fram og Valur sem leika til úrslita í deildabikarkeppninni í knattspyrnu, Lengjubikarnum. Í kvöld tryggðu Framarar sér sæti í úrslitaleiknum með því að bera sigurorð af Breiðabliki þar sem úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 0:0, en framlengingin var mjög fjörug og skoruðu bæði lið tvö mörk. Prine Rajcomar skoraði bæði mörk Blika sem komu af vítapunktinum en Grímur Björn Björnsson og Heiðar Geir Júlíusson skoruðu fyrir Framara.
Í vítakeppninni nýttu Framarar fjórar spyrnur sínar en Blikarnir aðeins tvær.