Hannes Þ. Sigurðsson og Eyjólfur Héðinsson voru á skotskónum með liðum sínum í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Hannes skoraði síðara mark Sundsvall í 2:2 jafntefli gegn Trelleborg og Eyjólfur skoraði fyrra mark GAIS í 2:0 sigri á Gefle.
Hannes og Sverrir Garðarsson léku allan tímann fyrir Sundsvall en Ara Frey Skúlasyni var skipt útaf á 66. mínútu.
Eyjólfur Héðinsson lék fyrstu 80 mínúturnar fyrir GAIS og Jóhann B. Guðmundsson fyrstu 70.
Hvorki Garðar B. Gunnlaugsson né Gunnar Þór Gunnarsson komu við sögu hjá Norrköping sem tapaði fyrir Malmö, 2:1.