Eiður Smári Guðjohsen er í byrjunarliði Barcelona sem sækir Deportivo La Coruna heim í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Frank Rijkaard hvílir nokkra af lykilmönnum sínum en Börsungar sækja Manchester United heim í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld og Rijkaard er með hugann við þann slag.