Emil Hallfreðsson sat á bekknum allan tímann í liði Reggina sem vann afar þýðingarmikinn sigur í botnbaráttu ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í dag. Reggina er í fallsæti en botnbaráttan er geysilega hörð.
Toppliðin unnu öll. Inter sem á meistaratitilinn vísan, lagði Cagliari, 2:1, Juventus, skellti Lazio, 5:2, Roma burstaði Torino, 4:1, og AC Milan hafði betur gegn Livorno, 4:1.