Brasilíumaðurinn Ronaldo, framherji ítalska knattspyrnuliðsins AC Milan, var yfirheyrður af lögreglu í Brasilíu á mánudag vegna atviks sem kom upp á mótelherbergi aðfaranótt mánudags. Ronaldo lenti þar í útistöðum við þrjá klæðskiptinga sem hann taldi að væru konur.
Samkvæmt heimildum AP-fréttastofunnar segir Ronaldo að þeir aðilar sem staddir voru í herberginu hafi ætlað að beita hann fjárkúgun og segja fjölmiðlum frá þessum atburði.
Carlos Augusto Nogueira, rannsóknarlögreglumaður í Brasilíu, segir að leikmaðurinn hafi viðurkennt að hann hafi ætlað að greiða fyrir þá þjónustu sem honum stóð til boða á mótelherberginu.
„Hann reyndi ekki að leyna neinu og hann telur sig ekki hafa brotið nein lög. Hann hafði aðeins áhuga á að skemmta sér,“ segir Nogueira við AP. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglu en Nogueira segir að deilur hafi komið upp þegar Ronaldo áttaði sig á því að þeir þrír aðilar sem voru með honum á herberginu voru karlmenn en ekki konur eins og hann taldi í fyrstu.
Ronaldo meiddist illa á hné í febrúar s.l. og hefur hann verið í sjúkrameðferð eftir aðgerð sem framkvæmd var skömmu eftir að hann meiddist. Framherjinn hefur þrívegis verið kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá FIFA og tvívegis var hann í heimsmeistaraliði Brasilíu.