Valur sigraði Fram 4:1

Atli Sveinn Þórarinsson.
Atli Sveinn Þórarinsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Íslandsmeistaralið Vals sigraði Fram, 4:1, í úrslitaleik deildabikarkeppni KSÍ í kvöld en staðan var 2:1 fyrir Val í hálfleik.

Danski framherjinn Dennis Bo Mortensen skoraði fyrsta mark leiksins á 4. mínútu fyrir Val og hann var aftur á ferðinni á 29. mínútu. Hjálmar Þórarinsson skoraði fyrir fram á 31. mínútu úr vítaspyrnu. Varnarmaðurinn Atli Sveinn Þórarinsson kom Val í 3:1 á 50. mínútu og Pálmi Rafn Pálmason gulltryggði 4:1-sigur liðsins með marki á 89. mínútu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert