Stefán Gíslason, fyrirliði Bröndby, skoraði fyrsta mark liðsins í 3:0 sigri gegn FC Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Markið var með glæsilegasta móti en Stefán tók boltann á lofti utan teigs með miklum tilþrifum og sendi hann í fjærhornið.