Margrét Lára með þrennu og 40. markið

Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar eftir að hafa komið Íslandi í …
Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar eftir að hafa komið Íslandi í 2:0 í dag. mbl.is/Eggert

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur skorað þrennu fyrir íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sem er að vinna Slóveníu, 3:0, í Evrópukeppninni á Laugardalsvellinum.

Þriðja mark Margrétar var jafnframt hennar 40. mark fyrir A-landslið Íslands en hún bætir eigið markamet í hverjum leik. Margrét Lára, sem er aðeins 21 árs, spilar í dag sinn 42. A-landsleik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert