AC Milan hyggst ekki bjóða Ronaldo lengri samning að svo stöddu en samningur Brasilíumannsins við ítalska liðið rann út í gær.
Ronaldo, hinn upprunalegi en ekki portúgalska stjarnan, hefur ekkert spilað síðan í febrúar þegar hann gekkst undir uppskurð á hné vegna meiðsla og þó endurhæfingin hafi gengið framar vonum mun sá ekkert spila fyrr en í fyrsta lagi eftir næstu áramót.
Er karlinn því samningslaus og telja ítalskir spekingar ólíklegt að hann spili fleiri leiki í búningi AC Milan úr því sem komið er.