KR vann í kvöld góðan sigur á Frömurum í 16-liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu. Lokatölur voru 2:0 og skoruðu KR-ingar bæði mörkin í fyrri hálfleik. Þar voru að verki Björgólfur Takefusa og Viktor Bjarki Arnarsson. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Liðin mættust síðast í Landsbankadeildinni þann 2. júní í leik sem KR vann 2:0 á sínum heimavelli. Mörkin skoruðu Björgólfur Takefusa og Guðjón Baldvinsson.
KR lagði lið KB að velli, 1:0 í 32-liða úrslitunum en Fram vann Hvöt frá Blönduósi 2:1.
Lið KR: Stefán Logi Magnússon - Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Pétur Hafliði Marteinsson, Guðmundur Reynir Gunnarsson - Óskar Örn Hauksson, Jónas Guðni Sævarsson, Viktor Bjarki Arnarsson, Ingimundur Níels Óskarsson - Björgólfur Takefusa, Guðjón Baldvinsson.
Varamenn: Kristján Finnbogason - Kristinn Magnússon, Ásgeir Örn Ólafsson, Vilhjálmur Darri Einarsson, Guðmundur Pétursson, Eggert Rafn Einarsson, Skúli Jónsson.
Lið Fram: Hannes Þór Halldórsson - Daði Guðmundsson, Jón Orri Ólafsson, Reynir Leósson, Samuel Tillen - Paul McShane, Ingvar Þór Ólason, Örn Kató Hauksson, Halldór Hermann Jónsson - Hjálmar Þórarinsson, Heiðar Geir Júlíusson.
Varamenn: Ögmundur Kristinsson, Hlynur Atli Magnússon, Grímur Björn Grímsson, Joseph Tillen, Guðmundur Magnússon, Ívar Björnsson, Kristinn Ingi Halldórsson.