Leikmannaskipti hjá Val og Aftureldingu

Valskonur fagna einu af fimm mörkum sínum gegn Stjörnunni í …
Valskonur fagna einu af fimm mörkum sínum gegn Stjörnunni í gærkvöld. mbl.is/Friðrik Tryggvason

Valur og Afturelding hafa komist að samkomulagi um leikmannaskipti. Valur lánar Aftureldingu þrjár ungar og efnilegar knattspyrnukonur til loka tímabilsins en það eru þær Anna Garðarsdóttir, Andrea Ýr Gústavsdóttir og María Rós Arngrímsdóttir en Valur fær í staðinn hina bandarísku Sophiu Mundy fá Mosfellsbæjarliðinu.

Íslandsmeistarar Vals tróna í toppsæti Landsbankadeildarinnar með 27 stig, fullt hús stiga, en Afturelding hefur 11 stig og er í fimmta sæti deildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert