Leiknir R. sigraði KS/Leiftur

Leiknir úr Reykjavík sigraði KS/Leiftur, 1:0, í 1. deild karla á Leiknisvelli í kvöld. Þór Ólafsson skoraði sigurmark Breiðhyltinga í fyrri hálfleiknum.

Leiknismenn eru þar með komnir með 11 stig í deildinni og í fimm stiga fjarlægð frá fallsæti en þar situr nú KS/Leiftur ásamt Njarðvík með 6 stig. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert