Sænsku meistararnir í IFK Gautaborg komust í kvöld upp í þriðja sæti sænsku 1. deildarinnar með 3:0 sigri á Gefle. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku allan tímann í vörn Gautaborgar sem hefur 26 stig, Elfsborg, lið Helga Vals Daníelssonar, er í öðru sæti með 28 og Kalmar trónir á toppnum með 32 stig.