Djurgården, liðið sem Siguður Jónsson þjálfar í Svíþjóð, náði ekki að komast á sigurbraut í kvöld þegar liðið heimsótti Helsingborg, lið Ólafs Inga Stígssonar. Lokatölur 2:0 fyrir heimamenn.
Ólafur Ingi er meiddur og lék því ekki með í kvöld. Eftir leikinn í kvöld er Helsingborg komið með 28 stig eins og Elfsborg og Hammarby, en Kalmar er í efsta sæti með 35 stig. Siguður er hins vegar enn í 10. sæti með lið sinn sem hefur fengið 18 stig.