KA og Víkingur úr Reykjavík gerðu 1:1 jafntefli á Akureyrarvelli í kvöld er liðin mættust í fyrsta leik 13. umferðar 1. deildar karla.
Víkingar komust yfir í leiknum með sjálfsmarki KA-manna. En Gyula Horvarth, sem lék sinn annan leik fyrir KA, skoraði jöfnunarmarkið.