Helga Arnarsyni, þjálfara 1. deildarliðs Njarðvíkur í knattspyrnu, var í gær sagt upp samkvæmt því er fram kemur á heimasíðu félagsins. Við þjálfarastarfinu tekur Marko Tanasic og hóf hann störf strax í gærkvöldi og mun stýra liðinu á móti Víkingi frá Ólafsvík í kvöld.
Tanasic lek lengi með Keflvíkingum og þjálfaði síðan KS og KS/Leiftur á árunum 2002 til 2006. Njarðvíkingar eru neðstir í 1. deildinni með aðeins 6 stig eftir 12 umferðir.