Stjörnumaðurinn Björn Pálsson var hetjan gegn ÍBV á Stjörnuvellinum í kvöld þegar hann tryggði Garðbæingum þrjú stig með marki á 85. mínútu. Þetta er aðeins annar tapleikur ÍBV í deildinni í sumar.
ÍBV er í efsta sæti með 34 stig, Selfoss er í öðru sæti með 31 stig eftir 2:1-sigur gegn KA í kvöld. Sævar Þór Gíslason skoraði fyrra mark Selfoss en Henning Eyþór Jónasson skoraði síðara markið fyrir heimaliðið. Stjarnan er með 28 stig í þriðja sæti.