„Fari Ronaldo fer ég líka!“

Alex Ferguson hyggst hætta verði Ronaldo seldur frá United.
Alex Ferguson hyggst hætta verði Ronaldo seldur frá United. Reuters

Alex Ferguson hefur gefið eigendum Manchester United afarkosti; fari Cristiano Ronaldo fer ég líka.

Þetta er fullyrt í spænska blaðinu Marca en þar á bæ hafa menn eðlilega mikinn áhuga á málinu en blaðið hefur lengi hallast verulega á sveif með Real Madrid sem er ein ástæða þess hve oft blaðamenn þess eru fyrstir með fregnir úr þeim herbúðunum.

Ljóst er þó að þó blaðagreinum um hugsanleg skipti Ronaldo frá Manchester United til Real Madrid hafi fækkað talsvert er málið enn til umræðu hjá báðum félögum og staðfest er að tilboð Spánverjanna hafi freistað og  freisti enn eigenda United, Glazer fjölskyldunnar, mikið.

Það veit Ramón Calderón forseti Real og hefur ítrekað beiðni sína um meiri peninga frá stjórninni til að ganga frá kaupunum og látið þau orð falla að annaðhvort verði Ronaldo keyptur eða enginn þetta sumarið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert