Rússinn Andrei Arshavin er í verkfalli hjá liði sínu Zenit St. Petersburg og herma fregnir frá Pétursborg að hann munu ekki spila aftur með liðinu nema gengið sé að kröfum hans um að fá að fara annað.
Allmörg félagslið hafa sýnt hinum 27 ára Arshavin áhuga síðan Evrópukeppninni í knattspyrnu lauk í sumar en þar þótti hann standa sig afar vel. Í kjölfarið hækkaði Zenit söluverð hans til muna og sú upphæð hefur fælt líklega kaupendur frá.
Þessu vill Arshavin ekki una enda á karlinn ekki ýkja mörg góð ár eftir í boltanum og vill eðlilega spila með stórliðum sem fyrst.