Enn fellur frægðarsól Reyes

Ferill Reyes áfram á niðurleið.
Ferill Reyes áfram á niðurleið. Reuters

Með hreinum ólíkindum er niðurfall spænska knattspyrnumannsins José Antonio Reyes sem þótti um tíma mesta efni spænskrar knattspyrnu. Eftir stórkostleg tímabil með Sevilla, misjöfn tímabil með Arsenal og mislukkuð tímabil með Real Madrid og Atletico fer karl nú á láni til Benfica.

Staðreyndin er að það sem fer upp kemur niður en svona hratt fall er merkilegt enda var meira gert með hæfileika Reyes á sínum tíma en nokkurn tíma var með til dæmis Fernando Torres.

Reyes er nú í Portúgal að skrifa undir lánssamning sinn og má leiða líkum að því að ferillinn sé á leið í vaskinn þegar vandræðalið Atletico Madrid hefur engin not fyrir kappann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert