Freyr með FH-ingum á ný

Freyr Bjarnason, sem hér í baráttu við Blikann Prince Rajcomar, …
Freyr Bjarnason, sem hér í baráttu við Blikann Prince Rajcomar, hefur jafnað sig af meiðslum og er í leikmannahópi FH gegn Aston Villa. mbl.is/Haraldur Guðjónsson

Freyr Bjarnason kemur inn í leikmannahóp FH á nýjan leik þegar FH-ingar mæta enska úrvalsdeildarliðinu Aston Villa í fyrri viðureign liðanna í UEFA-bikarnum á Laugardalsvellinum annað kvöld. Freyr hefur átt við meiðsli að stríða í læri síðustu vikurnar en hefur nú jafnað sig af þeim.

Atli Viðar Björnsson verður hins vegar ekki með annað kvöld vegna meiðsla en hann gerir sér vonir um að geta verið með í síðari leiknum á Villa Park eftir hálfan mánuð.

FH-ingarnir æfðu á Laugardalsvellinum nú síðdegis og var létt yfir leikmönnum Hafnarfjarðarliðsins sem ætla selja sig dýrt gegn enska úrvalsdeildarliðinu sem hefur á að skipa mjög sterku liði eins og aðdáendur ensku knattspyrnunnar ætti að vera kunnugt um.

Klukkan 15 í dag höfðu tæplega 7.000 miðar selst á leikinn og má búist við góðri stemningu á Laugardalsvellinum annað kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert