Real meistari meistaranna

Byrjar vel hjá Real.
Byrjar vel hjá Real. Reuters

Real Madrid sigraði lið Valenciu 4:2 í bráðskemmtilegum leik meistara meistaranna á Spáni í gærkvöldi þrátt fyrir að hafa lent 0:1 undir.

Var lið Real lengi í gang meðan leikmenn Valenciu voru frískir frá fyrstu mínútu. Skoraði Silva fyrsta markið eftir hálftíma leik en eftir það tóku leikmenn Real öll völd á vellinum og skoruðu næstu fjögur mörk áður en Morientes minnkaði muninn í blálokin.

Mörk Real skoruðu þeir Higuín, Nistelrooy, Sergio Ramos og de la Red.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert