Kjartan Henry Finnbogason skoraði þriðja og síðasta mark Sandefjord þegar liðið vann Odd Grenland 3:0 í dag, í norsku 1. deildinni í knattspyrnu. Markið skoraði Kjartan með skoti af tæplega 20 metra færi þegar um korter var eftir af leiknum.
Með sigrinum er Sandefjord áfram í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum á undan næsta liði, og á góða möguleika á að leika í úrvalsdeildinni á næsta ári.