Samhliða því að dregið var í riðla Meistaradeildar Evrópu í dag var tilkynnt um bestu leikmenn síðustu sparktíðar í Meistaradeildinni. Það þarf engum að koma á óvart að sá sem valinn var bestur var Cristiano Ronaldo hjá Manchester United. Hann var einnig valinn besti sóknarmaðurinn.
Besti markvörðurinn, varnarmaðurinn og miðjumaðurinn koma allir úr röðum Chelsea sem lék úrslitaleikinn við Manchester United síðasta vor. Besti markvörðurinn var valinn Peter Cech, besti varnarmaðurinn John Terry og miðjumaðurinn Frank Lampard.