Lögregluyfirvöld á Ítalíu telja afar líklegt að ítalska mafían hafi staðið bak óeirðum og látum hundruða áhangenda Napoli um helgina þegar liðið sótti Roma heim í Róm.
Gerðu áhangendurnir allt vitlaust, slógust við lögreglu og lögðu meðal annars heila lest í rúst. Hefur innanríkisráðherra Ítalíu í kjölfarið bannað áhangendum Napoli að ferðast með liði sínu á útileiki það sem eftir lifir leiktíðar.