George Burley landsliðsþjálfari Skota hefur þurft gera breytingar á leikmannahóp sinum fyrir viðureign Skota gegn Makedóníumönnum og Íslendingum í undankeppni heimsmeistaramótsins.
Kevin McNaughton varnarmaður frá Cardiff, miðjumaðurinn Callum Davidon hjá Preston og Kevin Thompson miðjumaður úr liði Rangers hafa allir þurft að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla.
Áður höfðu þeir David Marshall, David Weir og Garry O'Connor helst úr lestinni af sömu ástæðum og hefur Burnley valið Michael Stewart Hearts, Jamie Langfield, markvörð úr Aberdeen og Kirk Boradfoot, Rangers í staðinn.