Norskir fjölmiðlar eru heldur súrir með þá ákvörðun Age Hareide að halda lokaæfingu norska landsliðsins bak luktum dyrum í dag en það sama var uppi á teningnum í gær.
Bendir allt til að Hareide ætli sér að koma Íslendingum á óvart með leikskipulagi sínu ellegar væri lítil ástæða til að útiloka fjölmiðla frá æfingum. Ekkert slíkt er uppi á teningnum hjá Ólafi Jóhannessyni þjálfara Íslands.