Knattspyrnukappinn Eyjólfur Héðinsson skoraði eitt mark og átti stóran þátt í öðru þegar lið hans GAIS vann 2:1 sigur á lærisveinum Sigurðar Jónssonar í Djurgården, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Markið skoraði Eyjólfur á 73. mínútu en það reyndist síðasta mark leiksins. Þetta er annar leikurinn í röð sem að Eyjólfur skorar sigurmarkið í.
GAIS fór með sigrinum upp fyrir Djurgården og er nú í 8. sæti deildarinnar.