ÍBV fagnaði sigri í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í kvöld þrátt fyrir 3:1 tap fyrir liði Selfoss í dag. Matt Garner, fyrirliði Eyjamanna, hóf bikarinn, sem liðið fékk fyrir sigurinn, á loft í leikslok. Selfyssingar þurftu hins vegar að sætta sig við þriðja sætið í deildinni, þrátt fyrir sigurinn en Stjarnan hreppti sæti í úrvalsdeild á næsta ári ásamt ÍBV.