Spænska íþróttadagblaðið El Mundo Deportivo, sem gefið er út í Barcelona, þakkar Eiði Smára sigurinn á Real Betis í gærkvöld með stórri mynd af honum á forsíðu og fyrirsögninni: "Takk Guddy". Í umfjöllun um leikinn er honum líka þakkað fyrir að bjarga kvöldinu fyrir Samuel Eto'o sem gerði 100. mark sitt fyrir Barcelona í leiknum.
Íþróttafréttamaður El Mundo Deportivo skrifar m.a.:
"Þetta hefði ekki verið sanngjarnt. Veislan þar sem Samuel Eto'o náði sínu 100. marki fyrir Barcelona varð að fá farsælan endi. Þegar Betis jafnaði, 2:2, hugsaði enginn um þann frábæra árangur markaskorarans frá Kamerún að hafa skorað 100 mörk á fimm árum í treyju Barcelona.
Til að bæta gráu ofaná svart, tók Guardiola hann af velli einmitt þegar liðið virtist þurfa á markaskorara að halda í vítateignum. Svartsýni ríkti á Camp Nou og Eto'o virtist niðurbrotinn yfir leiðum endi á þessum frábæra leik hans. En hann fór að brosa á ný þegar Eiður Guðjohnsen tryggði Barcelona sigurinn og kom um leið afreki Eto'o í sviðsljósið á ný.
Þegar Íslendingurinn skoraði hljóp Kamerúninn og faðmaði þjálfarann sinn, sem virtist undrandi og tók fögnuðinum síðan fálega. Þrjú stig fyrir Barcelona og 100 mörk hjá Eto'o - fullkomið."