Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu hefur tilkynnt byrjunarliðið sem leikur gegn Frökkum í hreinum úrslitaleik um laust sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins á morgun.
Byrjunarliðið lítur þannig út:
Markvörður: Þóra Helgadóttir
Hægri bakvörður: Ásta Árnadóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Tengiliðir: Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir
Sóknartengiliður: Sara Björk Gunnarsdóttir
Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir