Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri gerði markalaust jafntefli gegn Norðurlandameisturum Noregs í lokaleik sínum í undankeppni Evrópumótsins á Vodafonevellinum í dag.
Þar með krækti liðið í sitt eina stig í undanriðlinum því áður hafði það tapað fyrir Úkraínu og Sviss. Ísland endaði því í neðsta sæti riðilsins og kemst ekki áfram í keppninni.