Ísland mætir Írlandi í umspilinu

Katrín Jónsdóttir fyrirliði Íslands
Katrín Jónsdóttir fyrirliði Íslands mbl.is/Algarvephotopress

Í dag var dregið í umspilsleiki fyrir EM kvenna í Finnlandi 2009.  Ísland var í hattinum og dróst gegn Írlandi og verður fyrri leikurinn á útivelli.

Ísland og Írland hafa mæst tvisvar sinnum og var það í bæði skiptin á Algarve Cup.  Árið 2007 sigruðu Íslendingar með fjórum mörkum gegn einu en fyrr á þessu ári gerðu þjóðirnar 1-1 jafntefli.

Náðst hefur munnlegt samkomulag við Íra og verður fyrri leikurinn leikinn, sunnudaginn 26. október kl. 15:00 að staðartíma á leikvangnum Tolka Park í Dublin. 

Síðari leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 30. október.

Þjóðirnar eru drógust saman í umspilsleikjunum eru:

Írland - Ísland

Tékkland - Ítalía

Slóvenía - Úkraína

Skotland - Rússland

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert