Miðvallarleikmaðurinn Wesley Sneijder mun geta leikið með hollenska landsliðinu í knattspyrnu gegn því íslenska í undankeppni HM í Rotterdam á laugardaginn. Talið var að félag hans, Real Madrid, myndi ekki leyfa honum að spila en hann er nýstiginn upp úr meiðslum.
Sneijder kom inn á sem varamaður í leik með Real um helgina í sínum fyrsta leik síðan á undirbúningstímabilinu en hann hefur átt við meiðsli í hné að stríða. Forráðamenn Real mæla því hins vegar ekki mót að Sneijder geti spilað heilan leik gegn Íslandi.