Erfiður sigur gegn erfiðu liði

Markaskorarinn Veigar Páll í hasar gegn Makedónum.
Markaskorarinn Veigar Páll í hasar gegn Makedónum. Brynjar Gauti

Veigar Páll Gunnarsson sem skoraði sigurmark Íslands í kvöld gegn Makedóníu segir íslenska liðið hafa verið nokkuð heppið að sleppa með stigin þrjú enda lið Makedóníu erfitt viðureignar.

„Þetta var barátta fyrir hverjum bolta og þeir voru ekkert að fara fínt í hlutina gegn okkur. Sigurinn er mjög góður í því tilliti en vissulega var farið að þjarma vel að okkur um tíma og liðið allt komið of aftarlega. En þetta hafðist og það er vel.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert