Norðmenn eru neðstir eftir tap í Osló

Stuðningsmenn Hollands höfðu ástæðu til þess að fagna í Osló.
Stuðningsmenn Hollands höfðu ástæðu til þess að fagna í Osló. Reuters

Öll spjót standa að Åge Hareide þjálfara norska landsliðsins eftir 1:0 tap liðsins á heimavelli gegn Hollendingum. Það var Mark Van Bommel sem skoraði eina mark leiksins á 62. mínútu en Noregur er í neðsta sæti riðilsins með 2 stig eftir 3 leiki. Hollendingar hafa unnið alla þrjá leiki sína í 9. riðlinum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert