Arnór fékk ekki tækifæri gegn AC Milan

Arnór Smárason.
Arnór Smárason. mbl.is/G.Rúnar

Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Smárason var á varamannabekk hollenska liðsins Heerenveen sem tapaði 3:1 á heimavelli gegn AC Milan frá ítalíu i riðlakeppni UEFA-bikarsins í kvöld.

Calvin Jong-a-Pin skoraði sjálfsmark fyrir Heerenveen strax á 19. mínútu.
Gennaro Gattuso bætti við marki á 23. mínútu fyrir gestina og Filippo Inzaghi skoraði þriðja markið fyrir ítalska liðið á 69. mínútu. Danijel Pranjic skoraði úr víti á 86. mínútu fyrir heimaliðið.
 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert