Valsmenn fara mikinn þessa dagana. Stutt er síðan tilkynnt var að Reynir Leósson hefði gengið í herbúðir þeirra frá Fram og nú er Ian Jeffs einnig kominn í Val eftir dvöl hjá Fylki síðasta árið.
Jeffs þótti eiga ágæta leiktíð hjá Fylki í sumar jafnvel þó árangur liðsins væri nokkuð undir væntingum. Er hann flinkur miðjumaður og ekki ónýtt fyrir Valsmenn að eiga einn slíkan í viðbót að en það var einmitt þunnskipaður bekkur Vals í sumar sem margir vildu meina að hefði verið einn akkilesarhæll liðsins í Landsbankadeildinni.