Diego Maradona mun taka við þjálfun landsliðs Argentínu frá og með
deginum í dag samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar. Maradona er 48 ára gamall
og er þjóðhetja í heimalandi sínu eftir sigur Argentínumanna á heimsmeistaramótinu
árið 1986.
Carlos Bilardo, þjálfari heimsmeistaraliðsins frá árinu 1986, sagði við fréttamenn í dag að búið væri að ráða Maradona sem þjálfara en Bilardo fundaði með forseta knattspyrnusambands Argentínu, Julio Grondona, í dag.
Alfio Basile sagði starfi sínu lausu eftir að Argentína tapaði gegn Chile í undankeppni heimsmeistaramótsins. Noray Nakis er formaður landsliðsnefndar knattspyrnusambands Argentínu og lýsti hann yfir stuðningi við Maradona í dag.