Vålerenga varð í dag norskur bikarmeistari í knattspyrnu þegar liðið sigraði nýkrýnda meistara Stabæk, 4:1, í úrslitaleik sem fram fór á Ullevaal vellinum í Osló. Veigar Páll Gunnarsson var í byrjunarliði Stabæk en var skipt útaf á 84. mínútu fyrir Pálma Rafn Pálmason.