Davíð Þór Viðarsson fyrirliði Íslandmeistara FH hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu sem mætir Möltu í vináttuleik ytra á miðvikudaginn. Davíð Þór kemur inn í hópinn fyrir Hallgrím Jónasson sem á við meiðsli að stríða.
Þetta er önnur breytingin sem Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur þurft að gera en Eggert Gunnþór Jónsson var í gær valinn í stað Grétar Rafns Steinssonar.