Thierry Henry skoraði þrennu í kvöld þegar Barcelona vann auðveldan sigur á Valencia, 4:0, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn með Barcelona.
Barcelona lék sér að Valencia á löngum köflum og Henry skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, á 20. og 28. mínútu. Dani Alves skoraði þriðja markið á fyrstu mínútu síðari hálfleiks og Henry innsiglaði sigurinn og þrennuna með marki á 79. mínútu, 4:0.
Eiður Smári lék á miðjunni hjá Barcelona og komst ágætlega frá leiknum. Hann átti ekki þátt í mörkunum en lagði upp dauðafæri fyrir Lionel Messi og átti gott skot rétt framhjá marki Valencia.
Barcelona náði sex stiga forystu, er með 35 stig, Villarreal 29, Valencia 27 og Real Madrid 26 stig, en Real Madrid á leik til góða.