Þórunn bikarmeistari í Brasilíu?

Þórunn Helga Jónsdóttir í búningi Santos.
Þórunn Helga Jónsdóttir í búningi Santos. santos.globo.com

Þórunn Helga Jónsdóttir, knattspyrnukona úr KR, á góða möguleika á að verða bikarmeistari í Brasilíu. Lið hennar, Santos, sigraði Sport Recife, 3:1, í fyrri úrslitaleik félaganna í bikarnum á sunnudaginn.

Þórunn kom inná sem varamaður í leiknum en hún hefur leikið alla leiki liðsins síðan hún kom til félagsins fyrir nokkrum vikum.

Leikurinn fór fram á heimavelli Sport Recife og sá síðari fer fram á heimavelli Santos annað kvöld. Þórunn Helga varð bikarmeistari með KR í haust og getur því orðið bikarmeistari í tveimur löndum á árinu, og það á afmælisdegi sínum, sem er á morgun.

Frétt af leiknum á heimasíðu Santos, smellið hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert