Ronaldo hinn brasilíski, sem nýlega gekk til liðs við Corinthians í heimalandi sínu, segist þurfa að létta sig um nokkur kíló áður en hann byrjar að spila með liðinu.
„Ég þarf að losna við fimm til sex kíló á undirbúningstímabilinu. Fólk ýkir um of um leið og það sér einhverja breytingu á líkama mínum, en ég er vissulega of þungur. Hinsvegar er það alveg eðlilegt, þar sem ég hef lítið sem ekkert hreyft mig undanfarið og er bara nýbyrjaður að æfa að nýju,“ sagði Ronaldo, sem er að ná sér eftir erfið hnémeiðsli sem hann varð fyrir hjá AC Milan.
Verður gaman að sjá hvort Ronaldo, sem er þrefaldur knattspyrnumaður ársins hjá FIFA, mun finna töframáttinn í skónum að nýju.