Eiður Smári Guðjohnsen tryggði Barcelona sigur gegn Atletico Madrid í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld. Börsungar hrósuðu sigri, 2:1, og skoraði Eiður sigurmarkið á 76. mínútu leiksins. Fyrra mark Barcelona skoraði Bojan Krkic.
Barcelona vann fyrri leikinn, 3:1, og vann því einvígið samanlagt, 5:2. Eiður Smári lék allan tímann á miðjunni og var frískur en hann hafði ekkert komið við sögu í síðustu tveimur leikjum liðsins.