Knattspyrnusamband Íslands og Sportfive hafa undirritað samning sem felur í sér að Sportfive hefur einkarétt á sölu á útsendingarrétti og markaðsrétti frá íslenskri knattspyrnu fyrir árin 2012 til og með 2015. Samningurinn er sá verðmætasti sem aðilar hafa gert sín á milli.
Samningurinn felur í sér eftirfarandi:
- Útsendingarrétt innan lands og utan á heimalandsleikjum A landsliðs karla og U21 landsliðs karla.- Tiltekin markaðsréttindi (vallarskilti) á heimalandsleikjum A landsliðs karla-
Útsendingarrétt frá leikjum í Landsbankadeild karla og VISA bikar karla.- Markaðsréttindi tengdum Landsbankadeild karla og VISA bikar karla, s. s. heiti mótanna og fl.
Auk þessa mun Sportfive í fyrsta sinn annast sölu á útsendingar – og markaðsrétti á leikjum A landsliðs kvenna og frá mótum KSÍ innanlands hjá meistaraflokki kvenna. Sportfive greiðir KSÍ ekki fyrir þennan rétt heldur munu verðmæti ráðast af hverri sölu fyrir sig.
Í byrjun árs 2008 gerðu KSÍ og Sportfive hliðstæðan samning fyrir tímabilið 2010 og 2011. KSÍ hefur því með þessum samningum falið Sportfive sölu á helstu útsendingar- og markaðsréttindum íslenskrar knattspyrnu á tímabilinu 2010-2015 eða yfir 6 ára tímabil. Það er áætlað að þessir samningar geti skilað knattspyrnuhreyfingunni allt að tveimur milljörðum króna á tímabilinu.